AGL Verktakar logo
Pípulagnir – pípari í Vestmannaeyjum hjá AGL Verktökum

Pípulagnir

Ofnalagnir / Hitaveita / Neysluvatn / Gólfhitakerfi / Frárennsli / Drenlagnir / Loftlagnir / Endurlagnir & viðgerðir

Vantar þig pípara í Vestmannaeyjum? Jónas G. Jónsson pípulagningameistari og AGL Verktakar sinna allri almennri pípulagnaþjónustu, og við búum yfir áratuga reynslu í faginu.

Ekkert verkefni er of lítið eða of stórt. Við sjáum um nýlagnir, endurlagnir, viðgerðir og viðhald, hvort sem um er að ræða ofna, hitaveitu, neysluvatn, gólfhita, frárennsli eða drenlagnir.

Hafðu samband við Jónas í síma 896-0074 og við gerum þér tilboð.

Algengar spurningar um pípulagnir

/ Hvenær er kominn tími til að skipta um ofna?

Algeng merki eru að ofninn hitnar ójafnt eða illa þótt búið sé að lofttæma hann, að ryð eða leki sjáist við tengi, eða að lagnirnar séu orðnar gamlar. Við komum og metum hvort dugi að gera við eða hvort borgi sig að skipta.

/ Takið þið að ykkur lítil verk?

Já. Ekkert verkefni er of lítið eða of stórt, hvort sem um er að ræða minni viðgerð eða endurlögn í heilu húsi.

/ Getið þið lagt gólfhita í hús sem er þegar byggt?

Já. Við fræsum fyrir gólfhita í núverandi gólf, leggjum rörin og flotum yfir, og skilum gólfinu tilbúnu fyrir gólfefni. Nánar um gólfhitafræsingu.

/ Hvernig fæ ég tilboð?

Hringdu í Jónas í síma 896-0074, sendu póst á aglverktakar@gmail.com eða fylltu út verkbeiðnina hér fyrir neðan.

AGL Verktakar logo

Sími

896-0074 (Jónas)

Netfang

aglverktakar@gmail.com

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

/AGLverktakar

/AGLverktakar

Verkbeiðni / Fá tilboð